|
22.11.02
Tónleikar Var á tónleikum hjá Hreiðari í gær. Einstaklega vel heppnaður, en núna þegar ég er að horfa á fréttirnar, þá er verið að kynna James Bond myndina, hver haldið þið að sé einmitt að syngja einhver James Bond lög? Sama gellan og söng fyrir Hreiðar í gær. Ég bara held það!
::19:00
Morgunlínan Vildi bara gefa út þá yfirlýsingu að ég var að reyna að sýna "morgunlínu Gulla" í Fréttablaðinu í vikunni. Bara til þess að engin sé að misskilja mig.
::18:57
Hommar í fremstu röð Til hamingju kynviltu karlmenn sem unnu stórglæsilegan árangur í Hr. Ísland! Þetta sýnir bara enn og aftur að við höfum stóran hluta fallegstu karlmannanna í okkar reglu. Vildi svo bara þakka ykkur öllum fyrir aðstoðina við að skauta í sáðfalli. Takk fyrir mig!
::18:56
19.11.02
Staffadjamm Get alveg vottað það að það var gaman í gær. Ég þambaði rauðvín eins og ég gat, en ég held barasta að þetta hafi verið litað vatn. Áhrifin voru enginn, allavega var ekkert mál að vakna í morgun. Umræðan í gærkvöldi litaðist svolítið af þrennu: Ritelglösum, milliréttum og þessari heimasíðu. Merkilegt hvernig maður getur haft áhrif á líf, skoðanir og hegðan fólks með einhverju pikki. Sumar drottningar eru einfaldlega dramadrottningar og þeim kynntist ég í gær. Annars afþakkaði ég boði Adda þegar hann bauðst til þess að bjóða mér út að borða, ég átti nú ekki von á því að segja nei, en þarna sagði kvenlega eðlið mitt til sín, ég var með hausverk! Vildi bara fara heim og sofa.
::11:33
|
|