Gulli : varstu að leita að mér?

Today I am Yes, I am!  |  gulli@love.is  |  Skjalaskápur - Eldra efni  |  Forsíða  

     

23.8.02

 
Kaupmannahöfn er spennandi
en það er þetta nám líka.

::12:57
 
Landapartý
Þá er komið að hinum alræmda Landadegi ættingja minna. Við hittumst í kvöld klukkan sjö og sláum upp Landapartý. Þessi partý eru altaf vel sótt og undantekingarlaust hefur verið mjög skemmtilegt á þeim. Ég hlakka til að fara feica ættingja mína í kvöld.

::12:56

22.8.02

 
Kaupmannahöfn - myndir
Myndir frá ráðstefnunni eru komnar á netið. Það má skoða þær hér.

::12:48

20.8.02

 
Stanslaust djamm
Annars er merkilegt hvernig djammið getur helst yfir mann. Maður er búinn að djamma að minnsta kosti til fimm á hverju einasta kvöldi úti í Danmörku og hefur verið vaknaður klukkan 9 til þess að mæta á ráðstefnuna, að vísu var sleppt því að sofa tvær nætur og svo var ekkert sofið nóttina milli GayPride og ráðstefnunnar í flugvélinni, ég á svo erftitt með það. Þannig að ég er nokkuð þreyttur, en þegar ég lendi hérna á klakanum (réttyrði) þá er manni strax boðið í staffapartý með fólkinu á Argentínu og þá heldur maður í hefðina og djammar til að minnsta kosti fjögur, núna að íslenskum tíma...

::13:51
 
Búinn að versla
Núna er ég kominn heim frá Kaupmannahöfn. Við lentum aðfaranótt mánudagsins. Þetta var hin fínasta ferð. Maður kemur allavega ekki heill heim, því maður er bæði heillaður af landi og þjóð. Ég fer aftur, og þá í einhvern lengri tíma...

Annars er hægt að lesa allt um ferðina hérna og hvað við gerðum.

::13:46

HÆ !

Velkomin á síðuna mína. Ég vona að þú eigið eftir að hafa það fínt hérna hjá mér, ég vil helst að þú hagir þér hérna eins og heima hjá þér. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir eða hrós sambandi við skrifin mín, þá endilega láttu mig vita.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Ágúst
Siggabeib
Bjarni hýri
Strumpurinn
Gyða Sól
Erlingur

FSS - ný síða!

emOde

gay.com
mbl.is
Spámaður
Hamstur
Betra.net
TheSpark
Love is ...
Búrfell